Hoppa yfir í aðalefni

2.1 Tenging við utanaðkomandi geymslusvæði

Hægt er að tengja gagnaskýið við gögn hýst á öðrum þjónum með SSL/TSL tenginu við gagnaskýið. Notendur sem eru með stór gögn á öðrum þjónum geta deilt þeim á milli samstarfsaðila í gegnum Nextcloud. Hægt er að setja upp tengingu milli gagnaskýið og gagnasafni á öðrum þjóni með því að fylgja eftirfarandi skrefum:

  1. Fyrst þarf að fara í aðgangstillingar sem er hægt að gera með því að smella á prófil myndina sína og svo „settings“.

  2. Vinstra megin á vefsíðunni ætti að vera texti sem stendur „external storage“, smella þarf á þann hnapp.

  3. Þegar komið er á „External Storage“ síðuna þarf notandi að fylla inn nokkra dálka.

    a. Folder name: Heiti á möppunni sem gögnin verða geymd á gagnaskýinu, getur verið hvað sem er.

    b. External Storage: Hér er stilling hvernig tenging verði á milli þjónsins og gagnaskýsins, best væri að setja upp SFTP tengingu, eða secure file transfer protocol.

    c. Authentication: Hér velur notandi innskráningar möguleika, á mynd má sjá RSA public key.

    d. Configuration: Inniheldur fjölmarga dálka sem hægt er að fylla inn í, þeir verða farnir yfir hér.

    i. Host: Hér þarf að skrifa nafn á þjóni sem notandi vill tengjast. Ef taka má dæmi þá getur notandi skrifað „elja.hi.is“ eða „ireigogn.hi.is“

    ii. Root: hér þarf að fylla inn fulla staðsetningu á gögnunum hjá þeim þjóni sem notandi vill tengjast.

    iii. Login: Hér þarf að fylla inn notandanafn notandans á þjóninum

    iv. ssh-rsa …: er public hluti ssh lykilins sem viðkomandi þarf að senda á kerfisstjóra þjónsins

    ATH! Mikilvægt er að athuga hvort að Authentication sé ekki örugglega stillt sem „RSA public key“ en ekki „RSA private key“.

    Áður en sent er á þjóninn þarf að fara í skref V.

    v. 1024: Hér getur notandi valið lengd lykilsins, mælt er með að uppfæra hann í 4096 og svo smella á „generate keys“. Síðan þarf að afrita ssh lykilinn sem var farið í gegnum í skrefi iv og senda á kerfisstjóra Elju. Hægt er að hafa samband við kerfisstjóra í gegnum þjónustugátt ef eitthvað er óljóst.

    e. Að lokum þarf að smella á „✔️“ hnappinn. Til þess að klára uppsetningu

alt text

Figure 19. tengja við utanaðkomandi gagnageymslu sem mun bera heitið „SomeFolderName“ og tengt með SFTP þar sem viðkomandi þarf að tengjast utanaðkomandi kerfi með ssh-lykli.

Ef tenging heppnaðist þá ætti að birtast grænn hringur sem geymir „ “ í stað rauða hringsins við vinstri hlið sem sést á mynd figure 19.

Til þess að geta deilt gögnum frá utanaðkomandi gagnageymslunni þá þarf að smella á „…“ hnappinn, staðsett á hægrameginn á mynd figure 19, og síðan haka við „enable sharing“ gátreitinn.

Til þess að staðfesta að skráin er tengd þá er hægt að vafra inn í „Files“ hluta vefsíðunnar og þar ætti að birtast skrá sem lítur út álíka og á mynd Figure 20.

alt text

Figure 20. Nafn á utanaðkomandi möppu

Þar ættu gögnin að vera geymd. Hægt er að deila þeim á milli notenda og samstilla þau við sína tölvu.